
157. þing
Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 2001. BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ 2005. Meistaragráða í alþjóðasamvinnu (MALD) með áherslu á hagfræði og orkumál frá The Fletcher School við Tufts háskóla í Bandaríkjunum 2011. Meistaragráða í opinberri stjórnsýslu með áherslu á umhverfis- og orkumál frá Harvard Kennedy School of Government 2017.
Starfaði við sendiráð Íslands í Brussel í Evrópu-, menningar- og markaðsmálum 2005-2009. Störf á sviði milliríkjaviðskipta, þróunarsamvinnu og kennslu í Lomé í Tógó í Vestur-Afríku og við Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) um nokkurra mánaða skeið á árunum 2009-2010. Forstöðumaður alþjóðaþróunar HR 2011-2013. Framkvæmdastjóri Iceland School of Energy við HR 2013-2016 og stundakennari við sama skóla til ársins 2020. Aðjúnkt við Harvard Kennedy School og kennsla á meistarastigi á sviði Norðurslóða, orku- og loftslagsmála 2019 til dagsins í dag. Meðstofnandi og stjórnandi við miðstöð Norðurslóða; Arctic Initiative, við Harvard Kennedy School of Government 2017-2021. Stofnandi Arctic Innovation Lab í samvinnu við fjölda háskóla. Leiðbeinandi í orkutengdum nýsköpunarhröðlum 2015-2021. Orkumálastjóri 2021-2024.
Alþingismaður Suðurkjördæmis síðan 2024 (Framsóknarflokkur).
Umhverfis- og samgöngunefnd 2025-, framtíðarnefnd 2025.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2025-.
Síðustu 100 atkvæðagreiðslur · 157. þing
80%
Mæting
97%
Fylgni við flokk
19
Fjarvistir
Skýring mætingar
Mæting miðast við 93 nýlegar rafrænar atkvæðagreiðslur á 157. þingi — raddkosningar og forsætisyfirlýsingar eru ekki taldar með. Fylgni við flokk er áætluð út frá meirihluta atkvæða innan flokks; hlutlæg atkvæði og fjarvistir teljast ekki með. Sjá öll þingstörf á althingi.is →