
157. þing
Stúdentspróf MR 2008. BS-próf í hagfræði HÍ 2011. MA-próf í hagfræði frá Boston-háskóla 2014. MA-próf í alþjóðafræði með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál frá Yale-háskóla 2016.
Starf meðfram hagfræðinámi á skrifstofu seðlabankastjóra 2009–2010. Hagfræðingur í greiningardeild Arion banka 2011–2012. Blaðamaður á Viðskiptablaðinu 2013–2014. Hagfræðingur í vinnuhópi á vegum forsætisráðuneytis 2014. Sérfræðingur í greiningardeild fjárfestingarbankans Morgan Stanley í New York og Lundúnum 2015–2017. Hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands 2017. Formaður verðlagsnefndar búvara í atvinnumálaráðuneyti 2017–2018. Aðjúnkt við hagfræðideild HÍ 2018–2020. Aðalhagfræðingur Kviku banka hf. 2018–2021. Forsætisráðherra síðan 21. desember 2024.
Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2021 (Samfylkingin).
Fjárlaganefnd 2021–2023, efnahags- og viðskiptanefnd 2023, fjárlaganefnd 2023-2024.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2021–2023.
Síðustu 100 atkvæðagreiðslur · 157. þing
70%
Mæting
100%
Fylgni við flokk
11
Fjarvistir
Skýring mætingar
Mæting miðast við 100 nýlegar rafrænar atkvæðagreiðslur á 157. þingi — raddkosningar og forsætisyfirlýsingar eru ekki taldar með. Fylgni við flokk er áætluð út frá meirihluta atkvæða innan flokks; hlutlæg atkvæði og fjarvistir teljast ekki með. Sjá öll þingstörf á althingi.is →