Þingvaktin
  • Forsíða
  • Þingmenn
  • Þingmál
  • Atkvæði

Gögn sótt beint frá althingi.is · Uppfærð á 24 klst. fresti

Sjálfstætt opið verkefni · Ekki opinber vefsíða Alþingis

Hafa samband
← Þingmenn
Bryndís Haraldsdóttir

Bryndís Haraldsdóttir

SjálfstæðisflokkurNúverandi þing

Yfirlit

157. þing

KjördæmiSuðvesturkjördæmi
FlokkurSjálfstæðisflokkur
Þingsetaþingmaður
Fæðingardagur29. desember 1976
Þing157. þing

Menntun

Stúdentspróf VÍ 1997. Diplóma í iðnrekstrarfræði frá Tækniskóla Íslands 2000. B.Sc.-próf í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniskóla Íslands 2001. Hefur stundað framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu við HÍ.

Starfsferill

Verkefnisstjóri stuðningsverkefna fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki hjá Impru nýsköpunarmiðstöð 2001-2003. Verkefnisstjóri Evrópumiðstöðvar Impru nýsköpunarmiðstöðvar með ábyrgð á norrænum og evrópskum nýsköpunar- og tækniyfirfærsluverkefnum 2003-2007. Fjármálastjóri hjá Góðum mönnum — rafverktökum ehf. 2007-2012. Stofnaði og rak útgáfufyrirtækið Góðan dag ehf. 2008-2010. Bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ og formaður skipulagsnefndar 2010-2018. Forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 2012–2014. Formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar 2014–2017. Í stjórn Strætó bs. 2012–2018, stjórnarformaður 2014–2016.

Þingmennska

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan 2016 (Sjálfstæðisflokkur).

Nefndaseta

Allsherjar- og menntamálanefnd 2016–2017 og 2021-2024 (formaður), umhverfis- og samgöngunefnd 2017, utanríkismálanefnd 2017 og 2017-2021, kjörbréfanefnd 2017, efnahags- og viðskiptanefnd 2017-2021, fjárlaganefnd 2021-2023, velferðarnefnd 2023-2024, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2025–.

Alþjóðanefndaseta

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2017 (formaður 2017) og 2017-2021, Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu 2017-2021 og 2021-2023 (formaður 2021-2023), þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins af hálfu Alþingis 2017, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2021-2024 og 2025- (formaður 2021-2024), forseti Norðurlandaráðs 2024.

Atkvæðagreiðslur

Síðustu 100 atkvæðagreiðslur · 157. þing

83%

Mæting

83 af 100 atkvæðagreiðslum

100%

Fylgni við flokk

70 af 70 atkvæðum

17

Fjarvistir

án fyrirvara

Skýring mætingar

Mætt í þingsal (já, nei, eða hlutlæg)83
Fjarverandi (boðað fjarvist)0
Fjarverandi (óboðað)17

Mæting miðast við 100 nýlegar rafrænar atkvæðagreiðslur á 157. þingi — raddkosningar og forsætisyfirlýsingar eru ekki taldar með. Fylgni við flokk er áætluð út frá meirihluta atkvæða innan flokks; hlutlæg atkvæði og fjarvistir teljast ekki með. Sjá öll þingstörf á althingi.is →